Ég hanna, skipulegg og stílisera heimili með það að markmiði að endurnýta og sporna við efnissóun. Ég elska að nýta gamalt í bland við nýtt og jafnvel ef hægt er á smekklegan hátt, að nota gamalt sem nýtt. Ég hef einnig haft það að leiðarljósi í minni hönnun, að rými séu hönnuð með auðveld þrif í huga og að skipulagi sé auðvelt að halda. Ég vinn náið með mínum viðskiptavinum til að hanna nákvæmleg
a það sem fólk þarf og vill. Plöntur skipa líka sinn sess í mínu lífi og það endurspeglast í hönnuninni, smekklegar og smart plöntur gefa rými svo mikið líf og karkater. Allt er þetta þó unnið í nánu samstarfi við viðskiptavini hverju sinni, en kunnátta mín og ástríða í blómafræðum getur komið sér vel þegar valin er planta í hvers konar rými.
Ég hef sjálf gaman af hreinum línum og minimalist hugsjón á mínu heimili, en hef gaman af að takast á við hverns konar stíl og þekki vel til mismunandi stíla og hönnunar.
Ég hlakka til að heyra frá þér og aðstoða við að endurhanna þitt rými eftir þínu höfði, með þínar þarfir í huga.
Ég skapaði Firebowl skálina (eldhnöttinn) með innblástur frá okkar stórkostlegu Íslensku náttúru og landslagi, þar sem litir og áferð minna mig á eldfjall og eldfjallagos. Þegar kveikt er á kerti í skálinni lýsir það upp og framkallar liti og hita, en líka skapar rólegt andrúmsloft og slökun. Ég elska að ferðast og sæki innblástur úr ferðum mínum. Skálarnar mínar eru skapaðar af alúð og hver og ein fær að mótast sjálf, þannig að engar tvær eru eins. Ég vona að eldhnötturinn minn hafi sömu róandi árhif á þig og hann hefur á mig og muni skapa hlýju og gleði hjá hverjum þeim sem fær hann. English below
I´m an Icelandic designer and mother of three beautiful girls. I created these "firebowls" with the help of the amazing nature and landscape of my beautiful country Iceland. I love to travel and often get inspiration on my travels. Firebowls are to me a capture of the fire and lava and the eruption in the earth, when a volcano erupts, when you put a candle inside and light it up you see the heat and beautiful colors that the fire of the candle brings and it reminds you of a lava erupting mountain in Iceland. Every single Firebowl is made with love and gets to grow into its own form, so no two Firebowls are the same. When lit it has a calming effect on me and I hope it will do the same for you.