Ráðhúsið atvinnu og samfélagssetur á Raufarhöfn

Ráðhúsið atvinnu og samfélagssetur á Raufarhöfn Ráðhúsið atvinnu og samfélagssetur á Raufarhöfn.

Spennandi starf sem tilvalið væri að vinna í Ráðhúsinu á Raufarhöfn 👌🏻Auglýst óstaðbundið https://island.is/starfatorg/x...
16/04/2026

Spennandi starf sem tilvalið væri að vinna í Ráðhúsinu á Raufarhöfn 👌🏻
Auglýst óstaðbundið

https://island.is/starfatorg/x-46371

👇🏻👇🏻

Sérfræðingur óskast í fullt starf hjá Rannís. Starfið felur í sér umsjón með allt að þremur fagráðum Rannsóknasjóðs; auk umsjónar með öðrum innlendum sjóðum og alþjóðlegum verkefnum.

Laust pláss hjá okkur ef þinn vinnuveitandi gefur grænt ljós ;)
14/04/2026

Laust pláss hjá okkur ef þinn vinnuveitandi gefur grænt ljós ;)

Fengi fólk að vinna eins mikið óstaðbundið og það vill og telur mögulegt í sínu starfi gæti íbúum landsbyggðarinnar fjölgað um 20 prósent samkvæmt nýrri viðhorfskönnun.

30/03/2026
Leitað er að öflugum verkefnastjóra í miðlun og ráðgjöf hjá SSNE. Um 50% starf er að ræða á einni af starfsstöðvum SSNE ...
06/03/2026

Leitað er að öflugum verkefnastjóra í miðlun og ráðgjöf hjá SSNE.
Um 50% starf er að ræða á einni af starfsstöðvum SSNE utan Akureyrar, t.d hér í Ráðhúsinu á Raufarhöfn ❤️

Leitað er að öflugum verkefnastjóra í miðlun og ráðgjöf hjá SSNE. Um 50% starf er að ræða á Húsavík eða á einni af starfsstöðvum SSNE utan Akureyrar. Upplýsingar veitir Albertína Friðbjörg Elíasdóttir ([email protected]) Umsóknarfrestur er til 29. mars nk. og sótt er um ....

🎉 Stórt fagnaðartíðindi  🎉Við erum ótrúlega ánægð að tilkynna að við höfum hlotið 10 milljón króna styrk úr stefnumótand...
18/02/2026

🎉 Stórt fagnaðartíðindi 🎉

Við erum ótrúlega ánægð að tilkynna að við höfum hlotið 10 milljón króna styrk úr stefnumótandi Byggðaáætlun 2026.
Til að halda áfram að bæta aðstöðuna í Ráðhúsinu! 💛
Nú verður síðari hluti húsins tekinn í gegn.
Við viljum koma á framfæri stórum þökkum til Byggðastofnun , Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra - SSNE og Norðurþing fyrir stuðninginn og samstarfið, þetta er mikilvægur áfangi sem mun skila sér langt út fyrir veggi Ráðhússins.

Innviðaráðherra hefur úthlutað 170 milljónum króna til fjórtán verkefna víðs vegar um landið til að efla viðkvæmar byggðir. Úthlutunin er sú hæsta sem veit

Ertu framúrskarandi penni ? Starf óháð staðsetningu, sem væri nú alveg kjörið að vinna á Raufarhöfn ;)
19/12/2025

Ertu framúrskarandi penni ? Starf óháð staðsetningu, sem væri nú alveg kjörið að vinna á Raufarhöfn ;)

Bændablaðið auglýsir eftir blaðamanni í 100% starf. Um er að ræða spennandi tækifæri hjá einum fjölbreyttasta og mest lesna prentmiðli landsins🗞️

✨ Framkvæmdum er lokið ! Og við erum himinlifandi með útkomuna!Verkið er styrkt af Byggðastofnun í gegnum framlög sem ve...
09/12/2025

✨ Framkvæmdum er lokið ! Og við erum himinlifandi með útkomuna!
Verkið er styrkt af Byggðastofnun í gegnum framlög sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar, sértækra verkefna sóknaráætlunarsvæða.

Við hlökkum til að taka á móti viðskiptavinum og samstarfsaðilum á aðventunni og á komandi ári.
🏢 Í Ráðhúsinu á Raufarhöfn starfa eftirfarandi fyrirtæki og stofnanir:
Norðurþing,Sýslumenn,Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra - SSNE, Orkuveita Húsavíkur,Pósturinn, Landsbankinn Og nóg pláss fyrir fleiri :)

👩‍💻 Ráðhúsið á Raufarhöfn er kjörinn staður fyrir fjarvinnu og skapandi verkefni, með topp aðstöðu í góðu samfélagi.
Við hvetjum alla sem geta unnið óháð staðsetningu til að koma og nýta þessa frábæru aðstöðu hjá okkur.
📸 Svona lítur lokaútkoman út !

🔨 Framkvæmdir í Ráðhúsinu á Raufarhöfn ganga vonum framar! 🎉  Við erum ótrúlega ánægð að segja frá því að framkvæmdir í ...
13/11/2025

🔨 Framkvæmdir í Ráðhúsinu á Raufarhöfn ganga vonum framar! 🎉

Við erum ótrúlega ánægð að segja frá því að framkvæmdir í Ráðhúsinu, atvinnu- og samfélagssetri, eru nú komnar vel áleiðis. Stór hluti verksins er þegar að verða búinn.

Varmaver hefur séð um framkvæmdir ásamt starfsmanni Norðurþing og hefur það gengið afar vel 👏👏
Nú bíðum við spennt eftir rafvirkjum sem munu klára næstu skref.

📸 Meðfylgjandi myndir sýna hvernig verkið hefur þróast og gefa góða mynd af því hve miklar breytingar eru að verða.
Við hlökkum til að taka á móti viðskiptavinum og sér í lagi fólki sem vill koma og hafa vinnuaðstöðu hjá okkur til lengri eða skemmri tíma eftir breytingar :)

Verkið er styrkt af Byggðastofnun í gegnum framlög sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar, sértækra verkefna sóknaráætlunarsvæða.

Hér er allt að gerast..... Gólfin verða flotuð á morgun og því búið að loka aðalinnganginum, vinsamlega gangið inn að af...
21/10/2025

Hér er allt að gerast..... Gólfin verða flotuð á morgun og því búið að loka aðalinnganginum, vinsamlega gangið inn að aftan

Hvetjum viðskiptavini að sýna þolinmæði og skilning á meðan verkið stendur yfir

Viðvera starfsmanns sýslumanns hjá okkur er því næst föstudaginn 10.október
01/10/2025

Viðvera starfsmanns sýslumanns hjá okkur er því næst föstudaginn 10.október

Sýslumenn á landsvísu halda sameiginlegan starfsdag föstudaginn 3. október.

🔨 Framkvæmdir eru að hefjast í Ráðhúsinu á Raufarhöfn!Við erum ótrúlega spennt að tilkynna að framkvæmdir eru að hefjast...
24/09/2025

🔨 Framkvæmdir eru að hefjast í Ráðhúsinu á Raufarhöfn!

Við erum ótrúlega spennt að tilkynna að framkvæmdir eru að hefjast í Ráðhúsinu, atvinnu- og samfélagssetri framtíðarinnar! 🎉
Norðurþing hlaut 8 milljón króna styrk úr stefnumótandi byggðaáætlun C1 sjóði og leggur Norðurþing til mótframlag í verkefnið. Markmiðið er að skapa aðstöðu fyrir fjölbreyttari atvinnustarfsemi, laða að frumkvöðla og nema, efla menntastig þorpsins og styrkja stoðir þess sem fyrir er.

📌 Fyrsti hluti framkvæmdanna er fjármagnaður, vonir standa til að allt húsið fái yfirhalningu á næstu árum en að þessu sinni verður áhersla lögð á að:
Færa afgreiðslu póstsins þar sem Landsbankinn er í dag.
Bankinn fær betri aðstöðu á lokaðri skrifstofu.
Samvinnurými verður uppfært og ný lokuð skrifstofa bætist við.

🎥 Meðfylgjandi myndband sýnir hvernig lokaútkoma verður vonandi, við hlökkum til að deila fleiri fréttum á næstu vikum!

⚠️ Framkvæmdirnar munu taka nokkra mánuði og við biðjum gesti og viðskiptavini að sýna þolinmæði og skilning á meðan verkið stendur yfir.

🪑 Við þurfum að losa okkur við afgreiðsluborð, skrifborð og skápa ( sjá myndir) ef einhver hefur áhuga á að nýta sér þetta, hafðu endilega samband við Svövu. Netfang [email protected], sími 464-9854

🌟 Ráðhúsið á Raufarhöfn – Staður fyrir fjarvinnu og framtíðarsköpun.Ráðhúsið á Raufarhöfn er meira en bara skrifstofa – ...
25/08/2025

🌟 Ráðhúsið á Raufarhöfn – Staður fyrir fjarvinnu og framtíðarsköpun.

Ráðhúsið á Raufarhöfn er meira en bara skrifstofa – það er lifandi atvinnu- og samfélagssetur þar sem fjölbreytt starfsemi og ný tækifæri mætast. Í húsinu starfa stofnanir á borð við SSNE, Norðurþing, Orkuveitu Húsavíkur, Landsbankann og Íslandspóst, auk þess er Sýslumannsembættið með fasta viðveru.

📍 Í sumar hefur verið líf og fjör í Ráðhúsinu. Starfsmenn frá RÚV, ÍSOR, VG og fleiri stofnunum hafa nýtt sér aðstöðuna til fjarvinnu. Einnig koma starfsmenn Norðurþings reglulega og taka vinnudag hjá okkur. Það er ómetanlegt að geta unnið í rólegu og fallegu umhverfi Raufarhafnar, um leið og maður nýtur þess sem svæðið hefur upp á að bjóða. Þetta ættu klárlega fleiri að skoða!

🎯 Markmið Ráðhússins er að laða að fleiri störf og verkefni í framtíðinni. Fyrirtæki, frumkvöðlar og nemar eru hvött til að nýta sér aðstöðuna – hvort sem um er að ræða skemmri viðveru eða lengri tíma. Námsmenn geta auk þess fengið aðgang að vinnuaðstöðu endurgjaldslaust á dagvinnutíma samkvæmt samkomulagi.

💡 Ef þú ert að leita að stað til að vinna í fjarvinnu, þróa hugmyndir eða tengjast öðrum í skapandi umhverfi – þá er Ráðhúsið rétti staðurinn fyrir þig !
----

🌟 Ráðhúsið in Raufarhöfn – A Place for Remote Work and Future Creation

Ráðhúsið in Raufarhöfn is more than just an office – it's a vibrant center for employment and community where diverse activities and new opportunities converge. Institutions such as SSNE, Norðurþing, Orkuveita Húsavíkur, Landsbankinn, and Post operate within the building, and the District Commissioner also maintains a permanent presence.

📍 This summer, the Town Hall has been buzzing with activity. Employees from RÚV, ÍSOR, VG, and other organizations have used the facilities for remote work. Staff from the municipality also visit regularly and spend workdays with us. It's truly invaluable to be able to work in the peaceful and beautiful surroundings of Raufarhöfn while enjoying everything the area has to offer. More people should definitely explore this opportunity!

🎯 The goal of the Ráðhús is to attract more jobs and projects in the future in Raufahröfn. Companies, entrepreneurs, and students are encouraged to make use of the facilities – whether for short visits or longer stays. Students can also access workspaces free of charge during daytime hours by arrangement.
💡 If you're looking for a place to work remotely, develop ideas, or connect with others in a creative environment – then the Town Hall is the right place for you!

Address

Aðalbraut 23
Raufarhöfn
675

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Ráðhúsið atvinnu og samfélagssetur á Raufarhöfn posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Ráðhúsið atvinnu og samfélagssetur á Raufarhöfn:

Share