29/05/2026
Tillaga ASK Arkitekta í samkeppni um skipulag Akureyrarvallar
Völlurinn – nýr kjarni mannlífs á Akureyri
Tillagan byggir á sérkennum staðarins og styrkir tengsl milli miðbæjar, Eyrarinnar og nærliggjandi hverfa. Markmiðið er að umbreyta gamla vellinum í lifandi og aðgengilegt borgarrými þar sem hreyfing, menning, samvera og daglegt líf mætast. Grænt og opið miðsvæði verður hjarta hverfisins, ætlað öllum aldurshópum til leikja, útivistar, viðburða og samfélagsstarfs.
Byggðin er í hóflegum mælikvarða, 2–4 hæðir, og fellur vel að nærumhverfinu. Hún myndar skjólgóð útirými, styrkir göngu- og hjólatengingar og stuðlar að öruggu umhverfi þar sem gangandi og hjólandi fá forgang. Áhersla er lögð á fjölbreytta starfsemi á jarðhæðum, þjónustu, vinnustofur og sameiginleg rými sem skapa lifandi götumynd.
Núverandi mannvirki á svæðinu eru nýtt og þeim gefin ný hlutverk til að skapa samfellu milli fortíðar og framtíðar. Stúkan verður meðal annars æfingaaðstaða fyrir ungt tónlistarfólk og samfélagsrými, á meðan ný menningar- og viðburðarhús styrkja fjölbreytt mannlíf svæðisins. Sérstök áhersla er lögð á barnamenningu, sköpun, hreyfingu og samfélagslega þátttöku.
Nálægð við skóla, leikskóla, sundlaug, verslanir og aðra þjónustu gerir svæðið að eftirsóknarverðum stað til búsetu og dvalar. Gróður og staðbundin flóra fá að njóta sín og stuðla að fjölbreyttu lífríki og sterkum staðaranda. Tillagan skapar þannig nýjan kjarna í bænum þar sem íbúar og gestir geta hist, hreyft sig, skapað og notið samveru í lifandi og sveigjanlegu borgarrými.