Stikan Teiknistofa ehf - Bygginga og raflagnahönnun.

Stikan Teiknistofa ehf - Bygginga og raflagnahönnun. Stikan býður upp á raflagna og lýsingahönnun, mannvirkjahönnun ásamt hönnun og uppsetningu á KNX hússtjórnarkerfum. [email protected]
GSM: 854-1155

Stikan teiknistofa ehf var stofnað sem Valraf ehf árið 2008 Kt650808-2310
Stikan teiknistofa býður upp mannvirkjahönnun, raflagnahönnun, lýsingahönnun ásamt uppsetningu og hönnun á KNX hússtjórnarkerfum. Starfsmenn Stikunnar eru:
Valur Benediktsson byggingafræðingur, raffræðingur og raflagna og lýsingarhönnuður. [email protected]
GSM: 898-0497
Guðmundur Freyr Hansson raffræðingur, raflagnahönnuður.

16/03/2026
Eru kynslóðaskipti á bænum og unga fólkinu vantar íbúð?Nýlega kom ungt fólk til okkar sem hafði áhuga á að skoða mögulei...
16/03/2026

Eru kynslóðaskipti á bænum og unga fólkinu vantar íbúð?

Nýlega kom ungt fólk til okkar sem hafði áhuga á að skoða möguleikann á að byggja lítið íbúðarhús í fallegri sveit. Eftir stuttan fund rissaði ég upp þessa hugmynd.

Áætlað er að grind hússins komi tilsniðin frá sögunarmyllu í Noregi.

Húsið er byggt á súlum, sem gerir mögulegt að færa það til ef þörf krefur. Það er hannað með algildri hönnun og getur hentað bæði sem íbúðarhús, í ferðaþjónustu eða sem sumarhús.

Stærð hússins er 73 m² og það inniheldur tvö nokkuð rúmgóð herbergi. Húsið verður hitað upp með gólfhita.

Að utan verður húsið klætt með standandi báruáli. Gluggar verða áltrégluggar og á þakið kemur svart báruál.

Loft verða upptekin í öllu húsinu, en salerni og eldhús eru hugsuð sem „kjarni“ eða eins konar skápur í rýminu. Loftið er því niðurtekið yfir salerninu – sem sést betur á sniðmyndinni.

14/03/2026

Fyrirtækið okkar er til sölu😊

ALLT AÐ GERAST Á ÁRSKÓGSSTRÖNDSplunkunýr aðili í framleiðslu forsmíðaðra húsa. Við félagar fengum í sumar það verkefni a...
11/03/2026

ALLT AÐ GERAST Á ÁRSKÓGSSTRÖND
Splunkunýr aðili í framleiðslu forsmíðaðra húsa. Við félagar fengum í sumar það verkefni að hanna stóra skemmu með stærðarinnar hurð á að Stærri Árskógi á Árskógsströnd í Dalvíkurbyggð.

Í framhaldi fengum við svo það verkefni að hjálpa þeim af stað með hönnun á forsmíðuðum einingarhúsum. Núna er fyrsta húsið á fullu í smíði og við kíkkuðum á þá félaga á Stærri Árskógi í dag.

Þetta er spennandi verkefni og við trúum að þarna séu góðir hlutir að gerast. Húsin geta verið alveg upp í 140m² að stærð og verða flutt hvert á land sem er.

Sjón er sögu ríkari. Fyrsta húsið er 49m² og er enþá til sölu. Það eru renderaðar útlitsmyndir af húsinu ásamt teikningum hérna neðar.

Hagaskógar 3 Núna seinustu vikur höfum við unnið að einbýlishúsi í Hagahverfi í Hörgársveit. Þar á að byggja tveggja hæð...
07/03/2026

Hagaskógar 3 Núna seinustu vikur höfum við unnið að einbýlishúsi í Hagahverfi í Hörgársveit. Þar á að byggja tveggja hæða timburhús með bílskúr. Húsið kemur tilsniðið frá sögunarmyllu í Noregi og verður því allt tilsniðið og númerað upp eins við höfum svo góða reynslu af. Gólf verða þó steypt á milli hæða. Núna erum við að vinna að burðarþoli og lögnum en aðaluppdrættir af þessu húsi eru klárir. Eins og oft hjá okkur þá eru allir gluggar vel stórir og margir gólfsíðir gluggar. Bílskúrsþakið myndar svo svalir fyrir efri hæðina. Þannig eru alveg 71m² svalir á þessu húsi sem verða með snjóbræðslu og ættu að nýtast vel allt árið. Þannig að húsið mun stækka á góðviðrisdögum út á svalirnar. Á svölunum verður pottur og hægt að borða morgunmatinn úti í morgunsólinni.

Einingarhúsaverksmiðja í Litháen sem heitir Restamodular hafði samband við okkur í haust og vildi fá okkur til að hanna ...
02/03/2026

Einingarhúsaverksmiðja í Litháen sem heitir Restamodular hafði samband við okkur í haust og vildi fá okkur til að hanna tvö stór eibýlishús fyrir sig á lóðir í Reykjanesbæ. Um var að ræða 2 stk 280m² einbýlishús upp á tvær hæðir. Húsin eru framleidd sem modularhús í verksmiðjum þeirra í Litháen en er raðað saman klædd að utan á staðnum. Hvort hús kemur í 7 alveg tilbúnum einingum. Þetta er búið að vera smá krefjandi verkefni á milli tveggja landa en nú á dögunum fengum við á Stikunni teikningar af þessum húsum samþykktar og núna getur framleiðsla modulana hafist í Litháen. Það er dótturfélag Restamodular á Íslandi Lava hus sem kemur til með að byggja húsin en við sjáum um alla hönnun. Þeir sem hafa skoðað smáhýsin sem Húsasmiðjan hefur verið að selja undanfarin ár hafa séð hús frá Restamodular en þeir hafa verið að selja frá þeim mikið af allra handa smáhúsum og sumarhúsum.

Það er ekki á hverjum degi sem nýtt hjúkrunarheimili er opnað en það átti sér stað núna á dögunum. Nýtt 80 rýma hjúkruna...
03/02/2026

Það er ekki á hverjum degi sem nýtt hjúkrunarheimili er opnað en það átti sér stað núna á dögunum. Nýtt 80 rýma hjúkrunarheimili var þá opnað að Nesvöllum í Reykjanesbæ. Við Stiku félagar teiknuðum þar raflagnir og lýsingar. THG arkitektar hönnuðu húsið og Ferill verkfræðistofa sá um burð lagnir og loftræsingu. Hrafnista fylgdi okkur eftir í allri hönnun og mun svo reka heimilið.

Húsið er búið mjög fullkomnu hússtýringarkerfi sem stjórnar lýsingu, loftræsingu, hitakerfum. Kerfið fylgist með allri orkunotkun, prófar sjálfvirkt allar brunalokur og neyðarlýsingu. Hönnun þessa skjákerfis sáum við Andor og Stikan en við sáum um að forrita ljósastýringar kerfisins og að hanna raflagnirnar upp fyrir kerfið. Andor sá um að hanna skjákerfið og forrita inn kerfið.

Við óskum öllum íbúum á Reykjanesi til hamingju með stórglæsilegt hjúkrunarheimili.

Við lendum í allskonar verkefnum og þegar stóð til að sonur minn ásamt félögum sínum áformaði að opnað bar að Hafnarstræ...
09/12/2025

Við lendum í allskonar verkefnum og þegar stóð til að sonur minn ásamt félögum sínum áformaði að opnað bar að Hafnarstræti 95 þá varð ekki hjá því komist að stökkva í að teikna þennan bar upp. Þarna hefur verið staðsett apótek frá því að húsið var byggt fyrir rúmum 50 árum. Fyrst til áratuga var þar Stjörnuapótek og núna seinni árin Apótekarinn sem lokaði í mai síðastliðnum. Framkvæmdin við barinn tók fljótt af og var strax sett upp plan að opna barinn um mánaðarmótin nóv-des. Verkefnið tók því einungis 3 mánuði í framkvæmd frá því byrjað var að teikna þangað til barinn var opnaður. Það voru því langir vinnudagar þarna, unnið flest alla daga og oft langt fram á kvöld og í restina líka fram á nætur. Barinn opnaði svo loks 5 des. Staðurinn fékk nafnið LEYNI og hefur tvo sali fyrir samtals 250 manns . Annar salurinn er fyrir rólegri bar stemmingu meðan hinn salurinn er meira fyrir uppákomur og tónlistarviðburði. Alls eru 14 bjórdælur með 13 bjórtegundir við barinn sem er alls 12m langur. Þarna ætti því að vera eitthvað fyrir alla barunnendur. Sjá greinar og myndir hérna neðar.

Stundum dettur maður um eitthvað sem maður hefur teiknað fyrir löngu síðan. Það verður að segjast að það eldist oft misv...
17/11/2025

Stundum dettur maður um eitthvað sem maður hefur teiknað fyrir löngu síðan. Það verður að segjast að það eldist oft misvel stundum fær maður kjánahroll en stundum eldast hlutirnir bara ansi vel. Fyrir margt löngu síðan þá var ég starfandi í olíupalla skaki í Noregi en fór í níu ár á strandveiðar á sumrin. Eitt haustið datt mér í hug að lenga bátinn um veturinn. Þegar ég fór út um haustið kom ég við hjá Siglingastofnun og hitti þar ágætann mann og spurði hann hvort ég mætti ekki teikna stækkun á bátnum sjálfur. Hann horfði á mig eins og ég væri algjör hálfviti og spurði svo hvort ég væri skipaverkfræðingur. Nei nei sagði ég en ég brasa nú ýmislegt. Hann sagði mér að bíða aðeins og skildi mig eftir á skrifstofunni í svona klukkustund. Ég hélt að hann hefði bara hreinlega gleymt mér. Svo kemur hann með þykkan búnka af ljósritum af alls kynns reglum og hlutum sem ég þyrti að hafa í huga við lengingu á bátnum og teikningu af því. Farðu með þetta og vittu hvað þú kemst langt. Ég fór svo til Noregs og var allar frívaktir að lesa og spá í þetta og næst þegar ég kom heim þá teiknaði ég þessar teikningar og gerði alls kynns mælingar á þykktum og fl af bátnum. Svo kom ég við hjá honum og sýndi honum teikningarnar og hann sagði bara flott, settu þetta bara inn hérna hinu meginn við ganginn. Þá spurði ég en þarf ekki ég að fá einhvern til að skrifa upp á þetta og senda þetta inn fyrir mig. þá sagði kallinn "sko ef þeir krefjast þess nú þá skal ég skrifa upp á þetta fyrir þig". Þetta var lausnarmiðaður embættismaður af gamla skólanum.

Framkvæmdir á Húsavík ganga vel. Þarna eru að koma upp 12 íbúðir með 6 bílskúrum og 6 útigeymslum. Það er skemmtilegt að...
10/11/2025

Framkvæmdir á Húsavík ganga vel. Þarna eru að koma upp 12 íbúðir með 6 bílskúrum og 6 útigeymslum. Það er skemmtilegt að fylgjast með þessu potast upp. Húsið kom forsniðið frá sögunarmyllu í Noregi. Gólfplötur á báðum hæðum eru þó steyptar. Húsið verður svo klætt með álklæðningum. Þessi hús eru á frábærri lóð að Hrauntúni 11-13-15 með stórbrotnu útsýni út á Skjálfandaflóa annars vegar og vilta náttúruna ofan við húsin í hina áttina. Þarna er því gert út á útsýnið eins og frekast var unt að gera og gluggar hafðir stórir.

Address

Baldursnesi 8
Akureyri
600

Telephone

+3548980497

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Stikan Teiknistofa ehf - Bygginga og raflagnahönnun. posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share