By Birgitta Bóas

By Birgitta Bóas Mála fjöllin í kringum mig og stöku sinnum annað áhugavert. Sendið skilaboð fyrir sérpantanir.

Vantaði smá af drottningunni á vegginn Herðubreið . febrúar 2025Vatnslitir og pastel
09/10/2025

Vantaði smá af drottningunni á vegginn

Herðubreið . febrúar 2025
Vatnslitir og pastel


Málaði þessa mynd handa góðvininum  sem fagnar hálfri öld í dag. Fékk æskuútsýnið af Súlum á Stöðvarfirði í gjöf. Til lu...
05/10/2025

Málaði þessa mynd handa góðvininum sem fagnar hálfri öld í dag.
Fékk æskuútsýnið af Súlum á Stöðvarfirði í gjöf.
Til lukku með daginn Gummó minn

🌟 Gleðilegt nýtt ár 🌟Það fjölgaðí í stúdíóinu 2024, ekki um málverk, en um einn lítinn meistara, velkominn Pétur Númi. K...
07/01/2025

🌟 Gleðilegt nýtt ár 🌟
Það fjölgaðí í stúdíóinu 2024, ekki um málverk, en um einn lítinn meistara, velkominn Pétur Númi. Kaos á vinnuborðinu, lítill tími til að mála, mála með hægri eða vinstri ? Allt saman tímabil sem líður allt of fljótt. Hann gerir daginn og lífið litríkara bara með því að vera til.
Málaði því lítið 2024, en hvert skiptið sem ég sé fjöllin, skýinn og fallegt sólsetur fæ ég fiðring í magann 🦋
Hlakka til að skella litunum frá á pallettuna og færa þeim líf á nýju ári og tækla verkefnalistann 🤍

23.09.23Að gefa brúðgumi sínum mynd af heimahögunum er góð gjöf. Ein brúður hafði samband við mig og sérpantaði þessa my...
24/09/2023

23.09.23
Að gefa brúðgumi sínum mynd af heimahögunum er góð gjöf. Ein brúður hafði samband við mig og sérpantaði þessa mynd, af fallega Vopnafirði.

36x50sm
vatnslitir á 300 gsm bómullarpappír.

Seld

✨ 19.07. ✨Tengdapabbi minn átti þennan dag og er það honum að þakka ég byrjaði að mála aftur, fyrir rúmum 6/7 árum gaf é...
20/07/2023

✨ 19.07. ✨
Tengdapabbi minn átti þennan dag og er það honum að þakka ég byrjaði að mála aftur, fyrir rúmum 6/7 árum gaf ég honum mínar fyrstu Dyr í afmælisgjöf. Ef ég bara vissi þá hvað ég var að koma mér útí. Dyrnar eru nú orðnar það margar að ég hef ekki tölu á þeim.
Kóreksstaðir er eyðibýlið sem tengdaforeldrar mínir keyptu og gerðu upp. Dyrfjöllin hvíla í bakgarðinum hjá ættaróðalinu og eru það þau sem drógu mig aftur að penslunum, ég þurfti að reyna koma þessari fegurð niður á blað.
Á næstsíðustu mynd sjáiði mynd af tengdapabba á staðnum sínum sem ég skissaði upp og gaf mágkonu minni í fimmtugsafmælisgjöf. Hún átti daginn í gær, en rúmt hálft ár er síðan hún fór til hans í sumarlandið.
Stuttu seinna kvaddi afi minn, stoð mín og stytta var hann alltaf og sagði stoltur að hann ætlaði sko að kaupa eina Dyrfjallamynd af mér og sagði mér að alls ekki selja hana of ódýrt.
Þessi þrjú hvöttu mig ávallt áfram og hugsa ég til þeirra á hverjum degi, fyrir þau held ég áfram að mála. Ef það er eitthvað sem þau kenndu mér er það að gera það sem maður elskar, lífið er of stutt fyrir annað ♥️

MælifellshnjúkurSérpöntun ✨Máluð eftir mynd sem Hjalti Árna tók — > Eigandinn sendi mynd af myndinni komna upp á vegg í ...
06/07/2023

Mælifellshnjúkur
Sérpöntun ✨

Máluð eftir mynd sem Hjalti Árna tók

— > Eigandinn sendi mynd af myndinni komna upp á vegg í svona fínum ramma 🥹

Vatnslitir, 36x50 sm

Þyrilsnes í HvalfirðiSérpöntun ✨Málaði þessa af geggjaðir mynd sem Auður Hlín tók frá toppnum á fjallinu Þyrill.25x35 sm...
24/06/2023

Þyrilsnes í Hvalfirði
Sérpöntun ✨

Málaði þessa af geggjaðir mynd sem Auður Hlín tók frá toppnum á fjallinu Þyrill.

25x35 sm
Vatnslitir á 300 gsm. bómullarpappír

Fékk þann heiður að mála brúðkaupsgjöf handa pari sem trúlofaðist hjá Eystrahorni. Hversu geggjuð gjöf 🤍Flettið á síðust...
16/06/2023

Fékk þann heiður að mála brúðkaupsgjöf handa pari sem trúlofaðist hjá Eystrahorni. Hversu geggjuð gjöf 🤍

Flettið á síðustu mynd fyrir hvernig mér leið þegar mér loksins tókst að klára myndina eftir 3. tilraun 🫢

Takk fyrir að treysta mér fyrir þessu

vatnslitir á 300 gsm bómullarvatnslitapappír, 35x50sm


• Dimmur vetrarblámi •Dyrfjöll, séð frá Kóreksstöðum2022Mynd 55x75 smKemur í hvítum eikar ramma,83x100 sm, með speglafrí...
25/02/2023

• Dimmur vetrarblámi •

Dyrfjöll, séð frá Kóreksstöðum
2022

Mynd 55x75 sm
Kemur í hvítum eikar ramma,
83x100 sm, með speglafríu ART gleri með UV vörn.

Til sölu

Gleðilega hátíð öll sömul og gleðilegt nýtt ár 🎆 Ég geng full af tilhlökkun inn í nýtt ár, enda 2022 búið að vera virkil...
01/01/2023

Gleðilega hátíð öll sömul og gleðilegt nýtt ár 🎆
Ég geng full af tilhlökkun inn í nýtt ár, enda 2022 búið að vera virkilega gott og lærdómsríkt ár, en mér finnst eins og þetta ár sem leið hafi verið lengi í bígerð.
Fyrir nokkrum árum sá ég sýningu eftir langalangaafa minn, Jón Stefánsson í Möðrudal, en sá merkismaður var dáinn áður en ég fæddist. Mögnuð sýning, bæði með listaverkum eftir hann og útskurð. Eitt tengdi ég rosalega við hann; þörfin fyrir að skapa, enda hefur það fylgt mér síðan ég man eftir mér. Man ég enn eftir þeirri sorgartilfinningu sem ég fann, stödd á þessari sýningu, því mér fannst ég væri ekki að skapa nóg. Sem var út í hött því ég var þá með tvö lítil börn, alltaf að baka, sauma og föndra með börnunum. Skapa líf í raun bara með þeim. En mig langaði að afreka meira og það ár, 2016, keypti ég mitt fyrsta vatnslitasett. Á hverju ári síðan hef ég lofað sjálfri mér að fá útrás fyrir þessari sköpunarorku sem ég finn fyrir. Jú ég nærist alveg við það að sjá um heimilið, börnin, köttinn, blómin, baka, skreyta, sauma, en ekkert jafnast á við sælutilfinninguna þegar mér tekst að mála fjöllin mín eða fjöllin handa ástvinum ykkar.
Hef ég óvænt fengið fyrirspurnir í gegnum árin um málverk, sem hefur ýtt mér til að mála og skapa meira en ég hefði trúað ég gæti.
2022 var stærsta árið mitt til þessa.
Ein spurning fékk mig til að mála margfalt meira en ég hafði gert öll seinustu ár.
Stofnaði ég þá i kjölfarið þessa síðu.
Málaði ég stærstu akrýl myndina mína til þessa sem og stærstu vatnslitamynd.
Í því tilefni fór ég smá út fyrir þægindaramman og hélt mína fyrstu sýningu, þökk sé góðu vinafólki og þakka ég kærlega öllum fyrir komuna.
Örfáum dögum eftir sýninguna fékk ég svo draum minn uppfylltan þegar ég fékk í hendurnar fullt vatnslitasett, með 135 litum.
Því má segja að ég hlakki rosa til 2023 því þá gefst tími til að prufa þessa liti.
Má segja að þessi sorgartilfinning yfir að ég sé ekki að skapa nóg sé löngu farin.
Megi þetta ár fara vel með okkur öll og vona ég að ég verði umkringd ástvinum og fjöllum sem oftast.
Takk kærlega fyrir það gamla, það hefur gefið mér meira en ykkur grunar ❤️

Address

Egilsstaðir
700

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when By Birgitta Bóas posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Category