24/06/2026
Ný vara hjá Stólpa!
Domino Clamp er sterk og endingargóð festing fyrir skipagáma sem gerir þér kleift að festa búnað, skilti, lýsingu, myndavélar og fleira án þess að bora eða sjóða.
Festingin smellpassar í staðlaðar opnanir á gámaskóm og skemmir því ekki burðarvirki eða yfirborð. Hún er auðveld í uppsetningu, endurnýtanleg og hentar jafnt fyrir tímabundnar sem varanlegar lausnir.
Stólpi býður upp á úrval lausna fyrir festingar á gáma og hjálpar þér að finna réttu lausnina fyrir þitt verkefni. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að velja festingu sem hentar best hverju sinni.
Sjá nánar: https://stolpigamar.is/vorur/gamafestingar/
📱568 0100.
📧[email protected]
Stólpi Gámar býður úrval lausna í gámafestingum.