05/06/2026
Í tilefni af sjómannadags helginni erum við með opið til kl 20 í kvöld föstudag. Ætlum að bjóða uppá létta hressingu fyrir viðskiptavini eftir kl 16. Við eigum mikið af fallegum vörum með fiskamunstri, svuntur, ofnhanska, bolla, töskur og margt fleira og bjóðum 20% afslátt af öllu tengdu fiskum og sjó í dag og á morgun laugardag.
Verðum líka með 20% afslátt af öllum fötum í dag til kl 20 þannig endilega grafið upp regnhlífina og kíkið við á Strandgötuna í Hfj. Margar aðrar verslanir í götunni eru líka opnar lengur í kvöld.