Grasengi - Garðaþjónusta og landgræðsla

Grasengi - Garðaþjónusta og landgræðsla Grasengi er garðaþjónusta á höfuðborgarsvæðinu. Við gefum þér fast verðtilboð þér að

16/08/2024

Hagkaup er ekki einhver bílskúrssala úti á Granda. Hagkaup er rótgróið og er…var virðulegt fyrirtæki sem að stórum hluta er í eigu lífeyrissjóðanna, þ.e. okkar.

Nú ætla Hagkaup að hefja ólöglega áfengissölu og bera fyrir sig persónulegum og pólitískum skoðunum forsætis – og dómsmálaráðherra í þeim efnum? Hvorugt þeirra hefur lýsti yfir að slíkt athæfi sé löglegt. Þvert á móti

Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum hvetja landsmenn til þess að sýna hug sinn í verki gangvart svona lögleysu og beina viðskiptum sínum annað. Virðingarleysi og hroki fyrirtækisins gagnvart lögum, opinberum lýðheilsumarkmiðum og vernd barna og ungmenna er fyrirtækinu til skammar.

Það ekki síður sorglegt, siðlaust og einstaklega óviðeigandi að lífeyrisjóðirnir okkar séu viðriðnir þessa brotastarfsemi.

Sýnum hug okkar í verki - Endilega deila þessu innleggi sem víðast

Slátturinn hjá okkur hófst í gærdag, 18. maí. Fljótt á litið er það svona þokkanlegt meðaltal. Eitt sumarið, 2018 eða 20...
19/05/2024

Slátturinn hjá okkur hófst í gærdag, 18. maí. Fljótt á litið er það svona þokkanlegt meðaltal. Eitt sumarið, 2018 eða 2019, hófst slátturinn 1. maí en einnig hafa komið sumur þar sem slátturgræjurnar voru ekki teknar út fyrr en í byrjun júní.

Fáðu tilboð í garðsláttinn í sumar. Tökum einnig að okkur trjásnyrtingar og beðhreinsun. Nánari upplýsingar í síma 615-1...
09/04/2024

Fáðu tilboð í garðsláttinn í sumar. Tökum einnig að okkur trjásnyrtingar og beðhreinsun. Nánari upplýsingar í síma 615-1605 eða [email protected]

Slátturinn byrjaði tiltölulega seint í ár, en melarnir í Bolaöldum fengu í dag fyrsta skammtinn af næringaríku grasi. Bi...
29/05/2021

Slátturinn byrjaði tiltölulega seint í ár, en melarnir í Bolaöldum fengu í dag fyrsta skammtinn af næringaríku grasi. Birkið frá landgræðslunni getur nýtt sér þetta góðmeti.

Það viðrar vel til landgræðslu 1. maí 🙂
01/05/2021

Það viðrar vel til landgræðslu 1. maí 🙂

23/04/2021

Ýmislegt getur farið úrskeiðis í trjáfellinga bransanum 😅

Garðeigendur eru í auknu mæli að gróðursetja fjölæringa í beðin sín. Mikið úrval af fjölæringum er á markaðnum og að ýms...
22/04/2021

Garðeigendur eru í auknu mæli að gróðursetja fjölæringa í beðin sín. Mikið úrval af fjölæringum er á markaðnum og að ýmsu þarf að hyggja áður plantan er valin. Garðeigandinn verður að vera meðvitaður um að fjölæringar hafa ólíkar þarfir þegar kemur að jarðvegsgerð, jarðraka og birtu. Rangt staðarval í garðinum getur dregið úr þrifum og jafnvel drepið plöntuna. Ekki snúa allir garðar að suðri og sumir fá eingöngu sólarglætu úr norðri, en sólarleysi takmarkar nokkuð hvað þrífst í garðinum. Einn fallegur fjölæringur líður hvergi betur en í skuggsælum garði, nefnilega Fjöllaufungurinn, burkni í daglegu tali. Fjöllaufungur er íslenskur, týpísk skógarbotnsplanta sem nýtir vel þá sólargeisla sem ná alla leið niður á skógarbotninn. Hann er nokkuð harðgerður en betra er að setja hann niður í sem mestu skjóli frá ríkjandi vindátt. Hann kýs venjulegan rakan jarðveg en þolir einnig nokkurn þurrk. Hann verður 70-80 sm á hæð og jafnvel hærri og mun setja skemmtilegan svip á garðinn.

Í vikunni fóru starfsmenn Grasengi uppí Bolöldu, skammt frá Vífilfelli, þar sem við leggjum stund á landgræðslu og skógr...
17/04/2021

Í vikunni fóru starfsmenn Grasengi uppí Bolöldu, skammt frá Vífilfelli, þar sem við leggjum stund á landgræðslu og skógrækt. Við tókum með okkur fulla fötu af stafafuru- og sitkaelrifræjum sem okkur áskotnaðist frá Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar. Í sumar stendur til að gróðursetja birki og halda áfram að næra líflausan jarðveginn með grasi úr görðum Reykjavíkur. Stafafura er sérlega góð landgræðsluplanta. Hún er með eindæmum harðgert og nægjusamt tré sem getur þrifist við aðstæður sem fá önnur íslensk tré láta bjóða sér uppá. Ekki er óalgengt að sjá stafafuru spretta uppúr möl eða hrauni. Þessir eiginleikar gera stafafuruna að frábærri landgræðsluplöntu. Sitkaelri er runnkennd elritegund sem líkt og lúbínan lifir í sambýli við niturbindandi rótargerla. Rótargerlanir vinna nitur úr andrúmsloftinu sem þeir skipta fyrir sykur frá elrinum. Sambýlið gerir elrinum kleift að vaxa í gott sem niturlausum jarðveg.

Sumarið 2019 byrjaði Grasengi uppgræðslu á illfarinni þjóðlendu í Jósepsdal, skammt austur af Reykjavík. Allt gras sem v...
16/04/2021

Sumarið 2019 byrjaði Grasengi uppgræðslu á illfarinni þjóðlendu í Jósepsdal, skammt austur af Reykjavík. Allt gras sem við sláum í görðum höfuðborgarsvæðisins keyrum við upp í Bolaöldur
og dreifum yfir næringarlausu melana. Með tímanum brotnar grasið niður og nærir jarðveginn með kolefni og næringarefnum sem plöntur geta nýtt sér s.s og nitri, fosfór og kalí. Á haustin höfum við plantað ýmsum tegundum skógarplantna sem við keyptum eða áskotnaðist, mest birki og víði en einnig elri, reynivið og stafafuru. Ástand jarðvegsins á uppgræðslu- svæðinu mætti í besta falli flokka sem rýrt mólendi" en í rauninni er landið miklu verr farið en það. Á vorin fylgjum við gróðursetningunni eftir með örlítið af tilbúnum áburði. Eins og er stendur næringarskortur, vindkæling og frostlyfting gróðrinum fyrir þrifum en með elju og smá þrjósku má ýmislegt færa betri vegar

Nú fer að styttast í að grasið byrji að spretta. Hitatölur vormánaðana og hvenær frost fór úr jörðu stjórna miklu hvenær...
16/04/2021

Nú fer að styttast í að grasið byrji að spretta. Hitatölur vormánaðana og hvenær frost fór úr jörðu stjórna miklu hvenær grasvöxturinn fer af stað. Miðað við tíðarfarið í apríl og reynslu liðina ári myndi ég reikna með að almenningur miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu fari að draga fram sláttugræjurnar sínar um eða eftir miðjan maí en þeir sem búa í efri byggðunum ekki fyrr en í lok maí eða byrjun júní. Grasengi byrjaði ekki sláttinn fyrr en í byrjun júní rignar sumarið 2016 en sumarið árið eftir byrjuðum við annan maí. En á hefðbundnu íslensku sumri fer allt af stað í kringum 17. maí.

Áburðargjöf með tilbúnum kemískum áburði getur í smáum skömmtum verið gagnlegur endrum og eins. En til lengri tíma litið...
15/04/2021

Áburðargjöf með tilbúnum kemískum áburði getur í smáum skömmtum verið gagnlegur endrum og eins. En til lengri tíma litið þarf jarðvegurinn meira en það sem áburður einn og sér býður uppá. Það gleymist nefnilega stundum að jarðvegurinn iðar af lífi, lífi sem við ekki getum greint með berum augum, stundum kallað jarðvegsflóran. Flóran í jarðveginum samanstendur m.a af örsmáum bakteríum, sveppum og smádýrum sem lifa samlífi með plöntunum. Fjölbreytt og heilbrigð flóra er plöntunum lífsnauðsynleg því hún skaffar plöntunum næringu og ver rótarkerfi þeirra gegn árásum skaðlegra örvera. Með því að bæta jarðveginn með nýrri og næringaríkri mold ertu að slá tvær flugur í einu höggi, þú nærir bæðið plöntunnar og jarðvegslífið sem skilar sér í ánægðari og heilbrigðari plöntum. Rúsínan í pylsuendanum er að allir ánamaðkar í grendinni vilja koma í garðinn þinn til að smjatta á nýju moldinni, en ef þú vissir það ekki nú þegar þá er ánamaðkurinn lang mikilvægasta jarðvegsdýrið. Þess má geta að áburðagjöf, sérstaklega ofnotkun, drepur jarðvegslífið og eitrar umhverfið. Þegar jarðvegslífið deyr þá missir fer jarðvegurinn líminguna og hann byrjar að fjúka í burtu. Í gegnum tíðina hefur jarðvegsfok verið
alvarlegt vandamál í landbúnaðarhéruðum sem reiða sig eingöngu á tilbúinn áburð.

Address

Listabraut
Reykjavík
103

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Grasengi - Garðaþjónusta og landgræðsla posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Grasengi - Garðaþjónusta og landgræðsla:

Share

Category