20/03/2026
Við hjá Nordic Office of Architecture, í samstarfi við Eflu og SLA, erum stolt af því að vera með vinningstillögu í hugmyndaleit að rammaskipulagi fyrir Halla í Úlfarsárdal.
Tillagan Hallar – samfélag við hlíðarrætur leggur grunn að öflugu og eftirsóknarverðu hverfi þar sem samspil byggðar og náttúru er í forgrunni. Markmiðið er að styrkja nærumhverfið og bæta lífsgæði þeirra sem búa, starfa og sækja svæðið, með áherslu á virkan lífsstíl og sterka samfélagsheild.
Gert er ráð fyrir nýrri hverfismiðju með fjölbreyttri starfsemi, þjónustu og stofnunum. Almenningsrými í náttúrulegu umhverfi eru lykilþættir í uppbyggingu svæðisins, með það að markmiði að skapa aðlaðandi umhverfi allt árið um kring.
Í tillögunni er einnig gert ráð fyrir tveimur skólahverfum sem staðsett eru í svokölluðum grænum geira sem liggur í gegnum byggðina og tengir hana við útivistar- og náttúrusvæði í kring.
Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs og næstu skrefa í þróun verkefnisins.