17/08/2024
Þá er komið að því að hysja upp um sig sokkana og hlaupa Hring fyrir HRINGINN. 😁💪
Anna verður í klappliðinu þetta árið vegna meiðsla á fæti, en ég held uppi merkjum fjölskyldunnar og hleyp 10 k.
Eins og þið vitið þá er Anna formaður Hringsins til 7 ára og sú þétta upplifun sem það er að vera maki formannsins hefur verið ómetanleg. Hvað þessar konur gera og hafa gert í 120 ár...... Sem dæmi þá kostuðu þær þriðjung þess sem það kostaði að byggja Barnaspítalan árið 1998 (ALLAN SPÍTALAN) og samantekt eins af læknum Barnaspítalans leiddi í ljós að þær hafa gefið Barnaspítalanum yfir 1 milljarð á síðustu 17 árum. Það eru margar kökur og mikið af prjónavörum.....
Ég hvet ykkur kæru vinir til að styðja Hringinn og setja smá "smjör" inn á Hlaupastyrk til styrktar krökkunum. Við eigum flest öll börn og barnabörn. Við Anna höfum verið svo lánsöm að eignast 3 börn og 5 barnabörn til þessa og eru þau öll við góða heilsu í dag, en, þau hafa flest þurft á þjónustu Barnaspítala Hringsins að halda á einhverjum tímapunkti. Og... það er gott að vita að það er prinsipp hjá Hringskonum að greiða eingum laun (ekki einusinni formanninum) þannig að hver einasta króna sem þið gefið fer beint til krakkanna.