T.ark Arkitektar

T.ark Arkitektar T.ark is an Icelandic architecture firm that aims to create an environment that responds to users needs with timeless design and efficient solutions.

Við óskum öllum gleðilegs nýs árs og deilum áramótakveðju Laugarás Lagoon, hannað af T.ark, í samvinnu við góðan hóp.
31/12/2025

Við óskum öllum gleðilegs nýs árs og deilum áramótakveðju Laugarás Lagoon, hannað af T.ark, í samvinnu við góðan hóp.

Með þakklæti fyrir samfylgd og samvinnu á liðnu ári!
18/12/2025

Með þakklæti fyrir samfylgd og samvinnu á liðnu ári!

Þann 01.desember 1940 komu tveir ungir arkitektar, Gísli Halldórsson og Sigvaldi Thordarson sér upp skrifstofuaðstöðu vi...
01/12/2025

Þann 01.desember 1940 komu tveir ungir arkitektar, Gísli Halldórsson og Sigvaldi Thordarson sér upp skrifstofuaðstöðu við Laugaveg 64 – og þar hefst saga okkar. Saga Teiknistofunnar sem í dag ber nafnið T.ark.

Í dag fögnum við því 85 ára afmæli! Sagan okkar spannar í upphafi samvinnu þeirra tveggja og síðar breytingar í eigendahópi og starfsmannafjölda, niðursveiflur og uppgangstíma, flutninga og fjölbreytt samstarf.

Alla þessa sögu má sjá raungerða í mannvirkjum sem umlykja okkur og móta umhverfi okkar dag hvern. Má þar nefna Laugardalshöllina, Hótel Loftleiðir, Tollstöðina, Hótel Esju (nú Hilton Nordica), Húsnæði Símans við Ármúla og Suðurlandsbraut, Hellisheiðarvirkjun, Húsnæði Össurar, Arion banka við Borgartún 19, og nýrri verkefni á borð við The Reykjavik Edition, íbúðir við Austurbakka, Sky Lagoon og nýjustu fjöðrina í hattinn – Laugarás Lagoon ásamt fjölmörgum öðrum mannvirkjum: íbúðarhúsnæði, menntastofnunum, skrifstofuhúsnæði, félagsheimilum og virkjunum um allt land.

Hér stöndum við í dag – eigendur og starfsfólk T.ark – stolt af verkunum sem við höfum skilið eftir okkur og full eftirvæntingar fyrir því sem framtíðin ber í skauti sér. Til hamingju með daginn, kæru samstarfsfélagar og vinir!

Þetta er búið að vera virkilega skemmtilegt púsluspil. Það er gaman að fylgja eftir borgarlandslaginu sem við útfærðum f...
13/11/2025

Þetta er búið að vera virkilega skemmtilegt púsluspil. Það er gaman að fylgja eftir borgarlandslaginu sem við útfærðum fyrir Klasa með Tendru arkitektum og Arkís, og klára með að útfæra borgartorg í stað bílastæða við Smáralind

Lokaáfangi 201 Smára. Nýtt bæjartorg, fleiri íbúðir, skrifstofur og þjónusta sunnan Smáralindar.

Fallegt verk eftir Ólöfu Nordal mun sóma sér vel í nýju húsi Heilbrigðisvísindasviðs. En húsið er hannað af T.ark Arkite...
09/11/2025

Fallegt verk eftir Ólöfu Nordal mun sóma sér vel í nýju húsi Heilbrigðisvísindasviðs. En húsið er hannað af T.ark Arkitektar, BATTERÍIÐ ARKITEKTAR,, Landslag - teiknistofa, undir hatti TBL, ásamt JCA -www.johncooperarchitecture.com/ og Verkís.

Fallegar myndir úr lóninu
02/11/2025

Fallegar myndir úr lóninu

15/10/2025

Í tilefni af því að Laugarás Lagoon https://laugaraslagoon.is/ opnaði dyr sínar í dag, þá langaði okkur að deila smá myndbandi af hönnunarferlinu; skissum, skjáskotum, tilvísunum og tilfallandi vinnslugögnum sem urðu til á ferlinu án þess að enda endilega á verkstað eða hjá yfirvöldum. Myndefnið er að mestu leyti frá T.ark arkitektum, Hildiberg lýsingahönnun https://www.hildiberg.is/ og Fractal Mind myndgerðarstúdíói https://fractalmind.eu/ . Þökkum Eflu og Mannverk samvinnuna.

Við óskum Laugarás Lagoon til hamingju með opnunina!

////

As Laugarás Lagoon opened it´s doors today, we wanted to share images from the design process. They come from the archives of T.ark architects , Hildiberg lighting designers https://www.hildiberg.is/ and Fractal Mind graphic studio https://fractalmind.eu/ .
We also thank Efla engineering https://www.efla.is/ and Mannverk https://mannverk.is/ for the collaboration.

Congratulations to Laugarás Lagoon!

Í dag opnar Ylja, nýr veitingastaður Gísla Matt, og af því tilefni deilum við með stolti nokkrum myndum úr Laugarás Lago...
01/10/2025

Í dag opnar Ylja, nýr veitingastaður Gísla Matt, og af því tilefni deilum við með stolti nokkrum myndum úr Laugarás Lagoon, sem tekur á móti gestum á næstu dögum. Myndirnar voru teknar síðastliðið laugardagskvöld þegar við nutum dýrindis prufumáltíðar á Ylju.

Í hönnun Laugarás Lagoon var gengið út frá sömu hugsun og í matargerð Gísla; að byggja á staðbundnum gæðum. Allt timbrið í klæðninguna kemur úr Haukadalsskógi og var unnið í Þjórsárdal, á meðan torfið er fengið úr nágrenni Landeyjarhafnar á Markarfljótssöndunum.

Address

Hátún 2B
Reykjavík
105

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when T.ark Arkitektar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to T.ark Arkitektar:

Share