Kanon arkitektar

Kanon arkitektar Kanon architects provide quality work on projects of different content, expression and scale. Kanon arkitektar vinna í samræmi við gæðakerfi.

Unnið er að vottun gæðakerfis skv. ISO-9001 staðlinum.
Í gæðastefnu fyrirtækisins kemur fram að:

Að í starfsemi fyrirtækisins sé góð byggingarlist höfð að leiðarljósi, þar sem fagurfræði og notagildi fara saman og hugkvæmni beitt til að ná sem bestri úrlausn verkefna. Að þjónusta Kanon arkitekta uppfylli sem best væntingar viðskiptavina. Að huga að sjónarmiðum notenda. Að lausnir séu í samræmi v

ið eðli verkefnisins. Að útgefin gögn séu rétt og yfirfarin. Að innra umhverfi fyrirtækisins sé gott og stuðli að samheldni ánægju og þátttöku starfsmanna í framkvæmd gæðastefnu fyrirtækisins. Að fara að kröfum og bæta stöðugt virkni gæðastjórnunarkerfis. Að við hönnun og undirbúning framkvæmda sé neikvæðum umhverfisáhrifum haldið í lágmarki og sjálfbærni höfð að leiðarljósi.

Nemendagarðar Háskólans í Reykjavík eru að taka á sig mynd. 1. og 2. áfangi þegar risnir við Nauthólsveg 83abc og 85abc....
26/01/2026

Nemendagarðar Háskólans í Reykjavík eru að taka á sig mynd. 1. og 2. áfangi þegar risnir við Nauthólsveg 83abc og 85abc. Samtals eru það 258 námsmannaíbúðir. Nú styttist í að hafist verði handa við að reisa 3. áfanga, en hann samanstendur af 3 húsum, Nauthólsvegi 85d, Nauthólsvegi 87abc og Nauthólsvegi 87d. Með 3. áfanga bætast við 131 íbúð. Íbúðarhúsin eru í fallegu og skjólsælu umhverfi Öskjuhlíðar og njóta nálægðar við miðborgina.
Við Nauthólsveg 83d má einnig sjá rísa nýjan íbúðakjarna Félagsbústaða.
Nánar á heimasíðu Kanon arkitekta.
https://www.kanon.is/projects/nautholsvegur-83
https://www.kanon.is/projects/nautholsvegur-87--namsmannaibuðir
https://www.kanon.is/projects/nautholsvegur-83d--a-reitur
https://www.kanon.is/projects/heildarstærð6.227-mfjoldi-ibuða-112
https://www.kanon.is/projects/nautholsvegur-85d--namsmannaibuðir
https://www.kanon.is/projects/heildarstærð7.188-mfjoldi-ibuða-133

19/12/2025
Kanon arkitektar óska Albínu hjartanlega til hamingju með nafnbótina Heiðursverðlaunahafi Hönnunarverðlauna Íslands 2025
07/11/2025

Kanon arkitektar óska Albínu hjartanlega til hamingju með nafnbótina Heiðursverðlaunahafi Hönnunarverðlauna Íslands 2025

This is "Albína Thordarson Heiðursverðlaunahafi Hönnunarverðlauna Íslands 2025" by Iceland Design and Architecture on Vimeo,…

16/07/2025
Í gær afhenti verktakafyrirtækið Alefli ehf lykil að nýjum leikskóla í Helgafellshverfi í Mosfellsbæ. Leikskólinn Sumarh...
27/06/2025

Í gær afhenti verktakafyrirtækið Alefli ehf lykil að nýjum leikskóla í Helgafellshverfi í Mosfellsbæ. Leikskólinn Sumarhús tekur formlega til starfa nú á haustdögum. Kanon arkitektar sáu um arkitektahönnun bygginga, aðkomusvæða og leikskólalóðar. Meðhönnuðir voru Teknik verkfræðistofa ehf, TKM Hönnun ehf, Örugg verkfræðistofa ehf og Hljóðvist. Umsjón og eftirlit: VSÓ Ráðgjöf ehf. Nánar um verkefnið á heimasíðu Kanon arkitekta.
https://www.kanon.is/projects/honnun-nybyggingar-og-loðar-2021-2023.

Hestamannafélagið Sörli vígði nýja reiðhöll og félagsaðstöðu 4 júní s.l.  Kanon arkitektar sáu um arkitektahönnun og með...
27/06/2025

Hestamannafélagið Sörli vígði nýja reiðhöll og félagsaðstöðu 4 júní s.l. Kanon arkitektar sáu um arkitektahönnun og meðhönnuðir voru Teknik verkfræðistofa ehf, TKM Hönnun ehf, Örugg verkfræðistofa ehf og Hljóðvist. Eykt ehf sá um framkvæmdir. Meðfylgjandi myndir voru teknar á verktíma og vígsludaginn - nánar um verkefnið á heimasíðu Kanon arkitekta.
https://www.kanon.is/projects/reiðholl-sorla-i-hafnarfirði

Við kveðjum Laugaveg 26 eftir 18 frábær ár.  Nýtt aðsetur Kanon arkitekta er nú í húsnæði Íslenska sjávarklasans Grandag...
27/06/2025

Við kveðjum Laugaveg 26 eftir 18 frábær ár. Nýtt aðsetur Kanon arkitekta er nú í húsnæði Íslenska sjávarklasans Grandagarði 16. Við horfum bjartsýn til framtíðar.

Skemtileg umfjöllun um reiðhöllina okkar hjá Sörla í Hafnarfirði.
15/12/2024

Skemtileg umfjöllun um reiðhöllina okkar hjá Sörla í Hafnarfirði.

Ný og glæsileg reiðhöll Hestamannafélagsins Sörla rís nú á Sörlastöðum í Hafnarfirði. Mannvirkið er allt hið glæsilegasta og mun verða frábær viðbót við st ...

Kanon arkitektar fagna þrjátíu (30) ára afmæli um þessar mundir.  Fengum falleg blóm og gæddum okkur á gómsætum lagkökum...
01/12/2024

Kanon arkitektar fagna þrjátíu (30) ára afmæli um þessar mundir. Fengum falleg blóm og gæddum okkur á gómsætum lagkökum s.l. fimmtudag í boði kollega. Þorkell missti af þessum kræsingum og myndatöku - vegna fundarsetu útí í bæ. Takk fyrir okkur 😊

Nú hefur tekið gildi Hverfisskipulag í Háteigshverfi, Hlíðahverfi og Öskjuhlíðarhverfi sem Kanon vann ásamt Teiknistofun...
10/09/2024

Nú hefur tekið gildi Hverfisskipulag í Háteigshverfi, Hlíðahverfi og Öskjuhlíðarhverfi sem Kanon vann ásamt Teiknistofunni Tröð og VSÓ ráðgjöf fyrir Reykjavíkurborg. Hverfisskipulag er deiliskipulag fyrir gróin hverfi sem á að gera þau vistvænni og sjálfbærari. Markmiðið er að þróa byggðina í takt við breyttar áherslur og um leið vernda og styrkja byggðarmynstur og staðaranda. Einfaldara verður fyrir íbúa að sækja um breytingar á húsum sínum eða lóðum með tilkomu hverfisskipulags.

Meðfylgjandi er linkur inn á Hverfisskipulagið hjá Reykjavíkurborg en þar má sjá öll gögn og myndefni í góðum gæðum.

https://reykjavik.is/hverfisskipulag/hlidar

Address

Grandagarður 16
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Kanon arkitektar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Kanon arkitektar:

Share