15/05/2026
Takk öll sem komuð og sáuð Lavaforming / Hraunmyndanir á - Hafnarhús, sem stóð frá 23.01.2026–26.04.2026. Það var sérstaklega ánægjulegt að opna sýninguna á Íslandi, á stóra sviði Listasafns Reykjavíkur, þar sem hún varð vettvangur fyrir samtal um list og arkitektúr, jarðfræðilegan tíma, efni og óstöðugleika — bæði í náttúrunni og þeim kerfum sem móta samfélagið okkar.
Næst ferðast verkefnið til Nice í Frakklandi í nóvember 2026, þar sem það verður sýnt sem hluti af OVNi Biennale 2026 í Forum d’Urbanisme et d’Architecture.
Lavaforming / Hraunmyndanir er framtíðarsýn og tilgáta um hvernig hægt sé að nýta náttúrulegt flæði kviku og kraft eldgosa til að móta og byggja upp arkitektúr framtíðarinnar. Í grunninn fjallar verkefnið um hvernig samfélög geta gert tilkall til auðlinda sem liggja undir fótum þeirra í miklu magni.
Verkefnið var fyrsta opinbera framlag Íslands til Feneyjatvíæringsins í byggingarlist árið 2025 áður en sýningin opnaði í Hafnarhúsi í janúar 2026. Í báðum sýningum var verkefnið kynnt með kvikmyndum, vísindagögnum og efnisprófunum, með áherslu á náttúrulega greind eldfjallalandslagsins.
Verkefnið hefur á undanförnum árum hlotið víðtæka umfjöllun í íslenskum og alþjóðlegum miðlum, meðal annars í viðtölum og umfjöllun á CNN, Monocle Magazine, PIN-UP, Architectural Digest, Financial Times, Fast Company, MIT Technology Review og Dezeen, auk fjölda annarra miðla.
listrænn stjórnandi,
Hraunskúlptúrar eru unnir í samvinnu við Halldór Ásgeirsson
Grafísk hönnun:
Aðrir samstarfsaðilar:
SSJ Steinsmiðja, Lavashow, Kjartan Thors Hagedorn-Olsen, Max Greiner, Fischersund, Viola Zhang, Arnar Evgeni Gunnarsson, Jeffrey Alan Karson, Kári Arnarsson, Sam Rees, Kateřina Blahutová, Nína Óskarsdóttir, Hanna Verk-Hrund Einarsdóttir, Tæknisetur-Gísli Guðmundsson, Dagur Ingi Ólafsson, Veðurstofan - Gro Birkefeldt Moller Pedersen. Lamont-Doherty Earth Observatory (LDEO), Columbia Climate School, Columbia University, RUV - Halla Harðardóttir, Gylfi Gylfason.