Gróðrarstöðin hefur vaxið jafnt og þétt síðastliðin rúm 50 ár, og er nú ein helsta uppeldisstöð landsins fyrir hverskonar garð- og skógarplöntur. STAÐSETNING
Starfssvæði Gróðrastöðvarinnar Markar er einkar vel staðsett. Við erum innst í Fossvogsdal - miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Kíkið endilega á okkur, heimilisfangið er: Stjörnugróf 18, 108 Reykjavík. VÖRUÚRVAL
Gróðrarstöðin Mörk hefur á boðs
tólnum garðtré í ýmsum stærðum, skrautrunna, skógarplöntur, fjölærar plöntur, sumarblóm og matjurtaplöntur. Einnig tilheyrandi vörur t.d mold, áburð og ker.
Á heimasíðunni okkar er plöntulistinn sem sýnir það mikla úrval af plöntum sem Gróðrarstöðin Mörk hefur á boðstólnum. Að vísu verðum við að hafa þann fyrirvara á að einstaka plöntur munu ekki vera fáanlegar á hverju ári, nokkrar eru í uppeldi og þurfa sinn tíma. Mat á harðgeri planta miðast við Reykjavíkursvæðið og Suðvesturland.