21/05/2024
WILLIAM MORRIS HEIMSÆKIR GALTALÆK Á LEIÐ Á HEKLU 1873.
Í bókinni "Straumar frá Bretlandseyjum" eftir Hjördísi og Dennis er ítarlegur kafli um William Morris sem var heimsfrægur breskur hönnuður, skáld og listamaður og lagði grunninn að “Arts and Crafts Movement” sem hafði mikil áhrif víða um heim. Þess má geta til gamans að á leið sinni að Heklu kom Morris að Galtalæk í Landsveit og leigði hesta og fleira af Finnboga Árnasyni bónda, langalangafa Hjördísar. Morris ber Finnboga vel söguna en hann gaf honum og félögum hans skyr og tók ekkert fyrir eins og segir í dagbókum hans en í þeim eru nákvæmar lýsingar á ferðalagi hans um landið, sérstaklega á náttúru og landslagi svo og bústöðum landsmanna sem flestir voru þá torfhús eins og Galtalækur. Hann kunni að meta einfaldleika íslenska torfbæjarins með ávölum þökum, klædd grasi og blómum.
Um þetta og margt fleira má lesa í bókinni okkar "Straumar frá Bretlandseyjum - Rætur íslenskrar byggingarlistar". Hún hefur nú verið endurprentuð að viðbættum eftirfarandi umsögnum fræðimanna:
„Umræðan um menningarstrauma frá Bretlandseyjum hér á landi einskorðast oft við uppruna þjóðarinnar, heim fornsagna og þjóðtrú síðari alda. Í þessari bók er horft úr nýrri átt á viðfangsefnið með því að rannsaka byggingararfinn frá öllum öldum og hvað megi lesa úr honum. Þetta er óvenju vandað og fallegt rit, með upplýsandi og vel teknum ljósmyndum innan um hófstilltan og fágaðan texta sem dregur saman þá flóknu þræði sem hafa þarf í hendi sér þegar hugurinn reikar um þessa löngu sögu á okkar margradda menningarsvæði við Atlantshafið.“
Gísli Sigurðsson íslenskufræðingur
rannsóknarprófessor við Árnastofnun
“Styrkur bókarinnar felst ekki síst í því hversu víða höfundar hafa leitað fanga í öflun heimilda og myndefnis, meðal annars á ferðum sínum víðs vegar um Bretlandseyjar og Ísland. Jafnframt því að uppfylla kröfur um vönduð, fræðileg vinnubrögð veitir ritið góða yfirsýn yfir viðfangsefnið sem vonandi verður höfundum og öðrum fræðimönnum hvati til frekari rannsókna á ýmsum þeim þáttum sem kynntir eru til sögunnar.”
Pétur H. Ármannsson arkitekt
sviðsstjóri hjá Minjastofnun Íslands
“Mikill fengur að bókinni fyrir fræðafólk á sviði fornleifafræði, mannfræði, sagnfræði og fleiri greina. Nú þykir ljóst að þáttur landnámsfólks annars staðar frá en Noregi, eins og til dæmis frá Bretlandseyjum, var ríkari en áður hafði verið talið við mótun íslensks samfélags. Bókin er því afar mikilvægt innlegg í ríkjandi umræðu á þessu sviði. Bókin er prýdd fjölda mynda sem skýra betur en mörg orð þau áhrif sem rekja má til Bretlandseyja á íslenskri byggingalist. Þá er texti bókarinnar allrar afar læsilegur og skýr.”
Steinunn Kristjánsdóttir fornleifafræðingur
prófessor við Háskóla Íslands
“Í bókinni rekja höfundar hversu áhrif frá Bretlandseyjum hafa skipt miklu máli í íslenskum arkitektúr allt frá upphafi Íslandsbyggðar. Texti í bókinni er lipurlega skrifaður og auðskiljanlegur fyrir lærða sem leika og myndir í henni eru margar hreint afbragð og undirbyggja vel það sem sagt er í textanum. Hjördís og Dennis lýsa bókinni sem rannsóknarverkefni, en hún er í senn einkar aðgengilegt fræðirit og skemmtilegt aflestrar.”
Árni Matthíasson
fjölmiðlamaður á Morgunblaðinu og RÚV
“I had not appreciated the influence of architectural ideas and styles from Great Britain and Ireland, which this brilliant book illustrates so clearly. Even in reading the summary in English I have learned much that I did not know previously, for example the influence of Iona Abbey on Skálholt, and the influence the torfbær had on the Arts and Crafts Movement. I now have a richer appreciation of the connections between Scotland, the rest of these islands, and our neighbours to the northwest. It is a fascinating topic, well researched and very well illustrated throughout with plans, drawings and black and white and colour photographs. I am glad to have a copy on my bookshelf where I can take it down and begin to see how I will understand the architectural history of Iceland, and the sensibilities of the Icelanders better on my next visit.”
Brian Rhys Wilkinson archeologist
Learning Development Manager
Historic Environment Scotland