01/04/2026
Kalla kukl og galdrarnir!
Felumynd.
Og tunglið heldur áfram sínu endalausa flandri og ekki vill maður vera tekin í bólinu svo þá er bara að hendast með.
Nú fór tunglið úr ljóninu og í meyjuna en þá ríkir jörðin og þá vinnum við með rótargrænmeti. Svo nú var tekið sig til og sáð rófum, rauðum og gulum. Og nú skiptir ekki máli hvort tunglið er sígandi eða stígandi, nær eða fjær, fullt eða nýtt því við sáningar pössum við bara uppá frumkraftana.
En hvar er Kalla?
Tap to view!